Redwood Moon er heitið á nýju samstarfverkefni parsins Barða Jóhannssonar og Elísabetar Eyþórsdóttur.
Fyrir skömmu sendi sveitin frá sér sitt fyrsta lag, gamla kántrísmellinn „The End Of The World“ sem kom fyrst út árið 1963 með tónlistarkonunni Skeeter Davis. Bæði Barði og Elísabet hafa verið mikið áberandi í íslnesku tónlistarlífi, Barði með hljómsveitina Bang Gang og Elísabet með verkefnin Beta Ey og Sísí Ey.
Lagið á ansi vel við þessa dagana en í samtsali við Mbl.is segir barði að lagið birtir til í lokin og endar í fallegum melankólískum draumaheim.
Umræðan