Eftir mikla eftirvæntingu er Mr. Silla loks að gíra sig upp í að gefa út nýja breiðskífu í fullri lengd, Hands on Hands. Hún mun koma út hjá hinni ný-stofnaða útgáfufyrirtæki Making Records.
Mr. Silla (Sigurlaug Gísladóttir) hefur verið íslensku tónlistarsenunni góðkunn síðan hún hóf samstarf við raftónlistar-frumherjana í múm snemma á tvítugsaldri. Útgáfa frumraunar hennar árið 2015, samnefnd henni, festi hana í sessi sem popptónlistarkonu og hún hefur jafnframt fundið sköpunargáfu sinni farveg í samstarfsverkefnum innan heima tísku og myndlistar.
Ólíkt myrkum tregasöngvum fyrri plötu hennar, fjallar Hands on Hands um tvíræðni hlutanna og spannar rófið frá hversdagsleika ristaðs brauðs með smjöri til flókinna viðfangsefna kyns og kynferðis. Léttleikandi og fjölbreyttur hljóðheimur Mr. Sillu spannar allt frá vönduðum kórútsetningum til popplaga sem fjalla um anime. Hands on Hands var tekin upp bæði í London og Berlín með upptökustjóranum Mike Lindsay (Tunng, Cheek Mountain Thief, o.fl.) og í samstarfi við upptökumanninn Sam Slater (Jóhann Jóhannsson, Ben Frost, Hildur Guðnadóttir, o.fl.). Nú er Mr. Silla með söfnun á Karolina Fund og mælum við eindregið með að allir leggi því lið!
Söfnunina má finna HÉR.
Umræðan