Tónlistarkonan Sigurlaug Gísladóttir betur þekkt sem Mr. Silla opnar sýninguna SUB ARC í Gallery Port á Laugarvegi 23b, laugardaginn 10. apríl. Opnunin verður frá kl. 14:00 – 18:00 og biðjum við fólk að dreifa heimsóknum, grímur og spritt verða á staðnum.
Á sýningunni SUB ARC má sjá röð málverka sem hún hefur unnið að undanfarið ár, í Berlín, Aþenu og Reykjavík. Sigurlaug hefur einstakt næmi fyrir jafnvægi í litasamsetningum og myndbyggingu, líkt og sjá má í tónlistarmyndböndum sem hún hefur unnið að.
Óræð rými verka sýningarinnar verða til í flæði listamannsins þar sem hver flötur ákvarðar næsta og svo framvegis þar til einskonar borgarlandslag hefur myndast. Í verkunum leitast Sigurlaug eftir því að fanga arkitektúr undirmeðvitundarinnar og skapar með því sögusvið eða sviðsmynd drauma, minninga og hugmynda.
Sigurlaug Gísladóttir útskrifaðist með BA gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2009. Hún starfar sem tónlistarkona undir nafninu Mr. Silla og vinnur auk þess að verkefnum í hönnun, myndbandagerð og förðun. SUB ARC er fyrsta einkasýning Sigurlaugar.
Hér fyrir neðan má sjá nýtt myndband við glænýtt lag sem heitir Coal:
Umræðan