ÚTÓN er þátttakandi í norrænni viðburðarseríu í streymi sem kallast Coffee with the Nordics, undir merkjum NOMEX. Markmið seríunnar er að varpa ljósi á þá vinnu sem fram fer á bak við tjöldin í tónlistarbransanum.
NOMEX er samstarfsvettvangur norrænu tónlistarútflutningsskrifstofanna, en hlutverk þeirra flestra er ekki bara að kynna norræna tónlist á alþjóðavísu heldur jafnframt styðja við uppbyggingu á innviðum tónlistarbransans í hverju landi fyrir sig. Meðlimir NOMEX eru auk ÚTÓN, Music Export Denmark, Music Finland, Music Norway og Export Music Sweden.
Fimmtudaginn 15. Apríl kl 8:00 mun ÚTÓN halda viðburðinn og bjóða til sín góðum gestum. Á þessum viðburði verður fjallað um tónlist í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og mun Hrefna Helgadóttir, nýráðinn verkefnastjóri kynningarmála hjá ÚTÓN, ræða við þá Atla Örvarsson og Colm O’Herlihy, stofnendur INNI Music.
INNI Music einbeita sér fyrst og fremst að forleggja (e. publishing) fyrir tónskáld og pródúsera en þetta er lykilskref í ferlinu að koma verkum í umferð af þessu tagi, þ.e. að skapa tækifæri við tónsetningu, eða stök lög (e. sync) og kvikmyndatónlist (e. score). INNI Music var stofnað 2019 og er fyrsta fyrirtæki hérlendis sem sérhæfir sig á þessu sviði, þ.e. sem tónlistarforleggjari og vinna þau meðal annars með tónlistarfólki á borð við Amiina, Sin Fang, Skúla Sverrissyni, Kára Einarssyni, Ayia, múm og Úlfi Hanssyni.
Hljóðsetning af þessu tagi er ekki bara ört vaxandi tekjulind fyrir tónlistarfólk, sem hefur margt hvert misst af tekjumöguleikum vegna covid-faraldursins, en íslenskt tónlistarfólk sem semur kvikmyndatónlist sérstaklega, hefur skarað fram úr á þessu sviði á heimsmælikvarða. Þar má helst nefna til Hildi Guðnadóttur, Ólaf Arnalds og Jóhann heitinn Jóhannsson en þau hafa unnið til verðlauna á borð við Óskarinn, Golden Globe, Grammy og BAFTA. Viðmælandinn Atli Örvarsson er margverðlaunaður sjálfur en hann hefur fjórum sinnum unnið ASCAP verðlaun fyrir störf sín í sjónvarpsþáttum sem og unnið að yfir 40 kvikmyndum, en hann starfaði lengi í Hollywood með goðsögninni Hans Zimmer. Hann hefur einnig verið leiðandi í Sinfonia Nord verkefninu sem er studio sem sérhæfir sig í kvikmyndatónlist (e. score) og hefur aðsetur í Hofi á Akureyri.
Hafir þú frekari áhuga að heyra hvernig koma má tónlist í sjónvarp og kvikmyndir er um að gera að mæta á vef-fyrirlestur NOMEX: Morning Coffee With The Nordics – Music for TV & Film þar sem Hrefna frá ÚTÓN mun stýra pallborðsumræðum með þeim Atla og Colm frá INNI Music.
Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn fyrir alla þann 15. apríl klukkan 8 og verður haldinn á Zoom. Linkur og skráning fer fram á Facebook event ÚTÓN.
Fylgstu nánar með Inni Music og Nomex.
Umræðan