Silva & Steini gefa út nýtt tónlistarmyndband við lagið “If It Was” af fyrstu plötu sinni, More Than You Know. Listakonan, ljósmyndarinn og leikstjórinn Anna Maggý leikstýrði myndbandinu. Jazz tvíeykið er á mála hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu FOUND sem er nýtt af nálinni og er tileinkað íslensku tónlistarfólki.
Tónlistartímaritið Under The Radar frumsýndi myndbandið á heimasíðu sinni í gær og segir: “Útgáfa Silvu & Steina af “If It Was” er lágstemmd og strípuð þar sem raddir þeirra fá að njóta sín óhindrað…tilfinninganæmur söngur Steina í byrjun lagsins mætir tærri rödd Silvu og andstæðar raddir þeirra mynda glæsilegan samhljóm.”
Söngkonan Silva Þórðardóttir og píanóleikarinn og söngvarinn Steingrímur Teague mynda jazz tvíeykið Silva & Steini. Þau gáfu út plötuna More Than You Know í fyrrasumar þar sem þau flytja jazz standarda í eigin útsetningum en platan verður endurútgefin í viðhafnarútgáfu á vegum FOUND síðar í sumar. Lagið “If It Was” sem samið var af Alan Hampton, hefur notið mikilla vinsælda og er nú þegar með 2 milljón hlustanir á Spotify. Anna Maggý leikstýrði myndbandinu sem var tekið upp í hinu einstaka Vatnasafni í Stykkishólmi innan um innsetningu listakonunnar Roni Horn þar sem standa 24 súlur með vatni sem fengið er úr helstu jöklum landsins.

Þetta draumkennda sjónarspil endurspeglar þemu sem finna má í texta lagsins um minningar, missi og endurfæðingu “Anna Maggý notaði sína mögnuðu sköpunargáfu og hæfileika til að skapa eitthvað töfrandi,” segir söngkonan Silva. “Hún nær að framkalla eitthvað algjörlega einstakt með list sinni því hún er svo ástríðufull og veit nákvæmlega hvað hún vill ná fram í augnablikinu”
Reynsluboltinn Jóel Pálsson leikur á bassaklarinett í laginu: “Ég er fyrst og fremst saxófónleikari svo bassaklarinettið er mitt annað hljóðfæri” segir Jóel. “Það er mýkri og viðkvæmari hljómur í bassaklarinettinu og góð áskorun að spila á það. Sólóið var síðan improviserað á staðnum.”
More Than You Know er aðgengileg á streymisveitum og mun koma út hjá plötuútgáfunni FOUND á geisladisk og vínyl 18. Ágúst. Hægt er að forpanta plötuna hér.
Tvíeykið heldur tónleika í Mengi næstkomandi sunnudagskvöld þar sem þau ætla að prufa nýtt efni á tónleikagestum en miða á tónleikana má nálgast hér
Meiri upplýsingar um Silvu & Steina má finna hér
Umræðan