Fyrir stuttu sendi hljómsveitin Hatari frá sér splúnkunýtt lag og myndband sember heitið „Klefi.”
Lagið og myndbandið er unnið í samstarfi við tónlistarmanninn Bashar Murad en hann kemur frá Palestínu. Myndbandið var að hluta tekið upp í Palestínu en Bashar Murad segir það afar mikilvægt að gefa út lag hans og hljómsveitarinnar Hatara á þessum tímapunkti. Arabískur titill lagsins, Samed (صامد), þýðir staðfesta og er tilvísun í staðfestu palestínsku þjóðarinnar.
Murad segir í samtali við Vísir.is að lagið fjalli um baráttu Palestínumanna fyrir tilverurétti sínum á meðan heimsbyggðin virðist hundsa þeirra aðstæður. Hatari og Bashar kynntust í aðdraganda Eurovision eftir að Hatari fór á stúfuna eftir tónlistarfólki frá Palestínu. Bashar berst fyrir frið, ást og réttlæti fyrir alla í gegnum tónlist sína.
Umræðan