Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme verður haldin dagana 5.– 8. apríl á Akureyri. Hátíðin er haldin í Hlíðarfjalli og í miðbæ Akureyrar, nánar tiltekið í Gilinu, Sjallanum og á Græna Hattinum!
Hápunktur AK Extreme verður Eimskips gámastökkið í Gilinu laugardagskvöldið 7. apríl en þar koma saman færustu snjóbrettamenn Íslands ásamt erlendum keppendum þar sem þeir keppa um AK Extreme titilinn og hringinn. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð2 Sport í opinni dagskrá.
Opnunarpartý AK Extreme verður haldið á Græna hattinum 5. apríl húsið opnar kl: 20:30. ATH helgar passinn gildir ekki í opnunarpartýið. Öflug tónleikadagskrá verður í boði í Sjallanum föstudaginn 6. og laugardaginn 7. apríl en þar koma fram:
Aron Can, Emmsjé Gauti, JóiPé X Króli, Birnir, Úlfur Úlfur, Flóni, GDRN, KÁ-AKÁ, Young Karin, DJ SURA, Yung Nigo Drippin og fleiri….
Hægt er að nálgast miða á Ak Extreme á Tix.is
Umræðan