Nú á dögunum gaf Kristberg Gunnarsson út lagið Sunrise. Sunrise er singull af plötu sem er í vinnslu og mun sjá dagsins ljós á næstu misserum. Einnig kom út tónlistarmyndband með laginu sem Björn Heimir Önundarson gerði. Myndbandið má jafnvel flokkast sem stuttmynd þar sem það hefur söguþráð sem gæti staðið sjálfstæður.
Eftir að Kristberg samdi lagið heyrði hann í Birni og spurði hvort það ekki væri hægt að plata hann í að gera myndband við lagið. Mesta vinnan lá í að teikna myndbandið, þar sem hver og einn rammi er handteiknaður á blað. Seinasta hálfa árið hefur Björn setið sveittur við teikniborðið og Kristberg lítandi yfir öxl hans að spekúlera og vega og meta. Ekki er mikið um teiknimyndir (e. Animations) á Íslandi þó það sé eitthvað. Líklega vegna hversu tímafrekt og kostnaðarsamt það er.
Kristberg og Björn hafa margt fyrir stafni á næstunni og ætla reglulega að gefa út tónlistarmyndbönd eða stuttar teiknimyndir.
Umræðan