Benni Hemm Hemm var að send frá sér glænýtt lag og myndband sem ber heitið Say Anything.
Benni Hemm Hemm er iðinn við lopann þessa dagana en fyrr á árinu gaf hann út 10 laga plötu á íslensku sem kallaðist KAST SPARK FAST og því var ekki seinna vænna en að henda í aðra á ensku, en sú mun kallast Thank You Satan.
Í Say Anything spilar Benni á allt sjálfur, gítar, trommur og bassa en Guðrún Ásta Tryggvadóttir syngur með honum. Benni gefur einnig út myndband við lagið sem má sjá hér að neðan. Albumm náði tali af Benna og er hann í hörkustuði!
—————————————————————————————————————–
Er Benni Hemm Hemm kominn á fullt aftur?
Já, ég held að það sé óhætt að segja það. Við gáfum út plötu í janúar, KAST SPARK FAST, sem við höfum verið að spila mikið af upp á síðkastið. Í febrúar kom svo út mun lágstemmdari plata með tónlist við leikritið Skarf, sem var frumsýnt á Seyðisfirði og verður sýnt í Þjóðleikhúsinu þegar plágunni lýkur. Núna á föstudaginn kemur svo út önnur smáskífan af þriðju útgáfu ársins. Og það er meira efni á leiðinni og vonandi sem mest spilerí þegar óhætt er að leggja í það aftur.
Nýtt lag og myndband og það á ensku! Afhverju ensku og segðu okkur aðeins frá laginu?
Síðasta vor, þegar ég fór að gramsa í lagapokanum hjá mér og fór að reyna að koma röð og reglu á það sem þar var að finna, kom í ljós að nokkur laganna skáru sig úr og vildu vera saman á plötu. Meðal annars eiga þau það sameiginlegt að vera á ensku. Annars bættist þetta tiltekna lag, Say Anything, síðast í hópinn en ég samdi það í sömu viku og Miklubraut. Fyrir mér eru þessi tvö lög í sama hugarheimi, en það sem mér fannst svolítið spennandi með Say Anything var að fjalla um framtíðina með gamaldags tónmáli. Það eru ekki mörg lög sem ég hef samið á ensku þar sem mér finnst ég ná að segja það sem býr mér í brjósti, ég hef helst getað það þegar ég hef verið búsettur í enskumælandi landi og verið byrjaður að hugsa á ensku, en mér finnst ég alveg geta staðið við textann í þessu lagi án þess að afsaka neitt eða fela mig á bakvið eitthvað grín eða eitthvað svoleiðis. En efni textans, sem ef til vill er alveg augljóst, er að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af neinu, við þurfum ekki að hafa áhyggjur af náttúrunni og að það auki á ástina og öryggið í kringum okkur ef við sýnum umburðarlyndi, tökum öllum eins og þau eru og leggjum okkur fram við að vera góð við hvort annað.
Er plata á leiðinni á ensku?
Já, EP platan Thank you Satan kemur út 17. apríl, bæði á netinu og á vínylplötu. Enski myndlistarmaðurinn Peter Liversidge, sem er góður vinur minn, gerði alveg ótrúlega fallegt umslag og það fylgir plaggat með plötunni. Það er hægt að panta hana HÉR.
Eitthvað að lokum?
Annars hlökkum við alveg sjúklega mikið til að halda útgáfutónleika sem þurfti að fresta og fara útum allar trissur og spila fyrir fólk. Einnig langar mig að benda á að það er líka hægt að kaupa boli með titli plötunnar, sem er hönnun Peters. Hægt er að versla hann HÉR.
Umræðan