Nóg er að gera hjá Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins en Þessa dagana er hún að undirbúa framboð sitt í borginni.
Hildur sækist eftir að leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs og vinna fyrir fólkið í Reykjavík. „Ég elska kosningabaráttur og er því alveg í essinu mínu um þessar mundir” segir Hildur. Eins og fyrr kemur fram er nóg að gera hjá Hildi en dagarnir samanstanda af fundum með fólki og fyrirtækjum, greinaskrifum, viðtölum og öðru viðlíka.„Ég vona að borgarbúar veiti okkur umboð og traust til að leiða mikilvægar breytingar í borginni. Þar munu leikskólamál og samgöngumál verða forgangsmál” segir Hildur að lokum.
Það er mánudagur, það er snjór úti og það er kalt. Þá er ekkert annað í stöðunni en að hlusta á góðta tóna en Hildur henti í ansi þéttan mánudagsplaylista. Það er alveg á hreinu að það verður enginn svikinn af þessum flotta lista og mælum við með að skella á play og njóta í botn.
Fylgstu með Hildi Björnsdóttur á Instagram
Umræðan