Tónlistarmaðurinn og pródúserinn Bjarki Ómarsson eða Bomarz er svo sannarlega með mörg járn í eldinum!
Bjarki er einstaklega fjölhæfur einstaklingur en hann hefur unnið með mörgum af okkar helsta tónlistarfólki og er margt framundan. Chris Medina, Aaron Gillespie og Gréta Salome svo fáir sé nefndir er allt fólk sem Bjarki hefur unnið með. Um þessar mundir er kappinn að vinna að glænýju lagið með tónlistarkonunni GDRN en það kemur út á vegum Sony 8. Janúar næstkomandi.
Bjarki er auðvitað mikill tónlistargrúskari enda snýst líf hans um tónlist alla daga. Það er því tilvalið að fá hann í mánudagsplaylistann á Albumm.is. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á listann og óhætt er að segja að hann sé ansi þéttur!
Umræðan