Tónlistarkonan Ása Dýradóttir sem flestir þekkja úr hljómsveitinni Mammút hefur komið víða við en þessa dagana er hún að leggja lokahönd á nýja Mammút plötu.
Undanfarið hefur Ása starfað mikið í London og samið kvikmyndatónlist en er nú komin heim og eins og hún orðar það „hjartað sækir heim þegar heimurinn nötrar.” Ekki nóg með það heldur er Ása tekin við sem verkefnastjóri Listahátíð Reykjavíkur og er að semja tónlist fyrir heimildarmynd um goðsögnina Andreu Jóns. Það er á hreinu að nóg er um að vera hjá Ásu og verður gaman að fylgjast með henni á næstunni.
Að sjálfsögðu er Ása mikill tónlistargrúskari og er því tilvalið að fá hana í Mánudagsplaylistann. Ekki hika við að skella á play, hann mun klárlega gera þennan mánudag mun betri.
Umræðan