Þann 9. maí n.k. mun myndlistarmaðurinn Úlfur Karlsson opna einkasýningu sína Omnivoures, eða Alætur, í Galerie Ernst Hilger (Hilger NEXT) í Vínarborg.
Sýningin samanstendur af 25 málverkum á striga sem flest eru ný og af stærri gerðinni, en það stærsta er 6 metra breitt. Einnig verða þrívíð verk á sýningunni.
Listamaðurinn hefur áður sýnt hjá Galerie Ernst Hilger en þetta er hans stærsta sýning þar hingað til. Úlfur kynntist Ernst Hilger þegar hann opnaði sýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur 2015 á sama tíma og ný sýning á verkum Errós var opnuð í sama safni, en leiðir þeirra liggja aftur saman nú í maí þar sem Erró verður einnig með sýningu á vegum Galerie Ernst Hilger.
Sýningin hans Úlfs stendur út ágúst og því er upplagt fyrir þá sem eiga leið um Vínarborg í sumar að koma við á þessum sýningum.
Úr text Aðalsteins Ingólfssonar í sýningarskrá vegna sýningar Úlfs í Listasafni Reykjanesbæjar 2018
,, Úlfur er fæddur árið 1988 og er með eftirtektarverðustu listmálurum sinnar kynslóðar. Verk hans eru litríkar og átakamiklar hugleiðingar um mannlífið í abstrakt-expressjónískum anda. Úlfur hefur sýnt verk sín víða, bæði á Íslandi og erlendis og m.a. í Hilger, hinu þekkta gallerí í Austurríki… Verk Úlfs eru litríkur vettvangur óútkljáðra átaka, skyndilegra hugljómana og ókláraðra frásagna. Mörkin milli veruleika og óraunveruleika eru yfirleitt óljós og á endanum skilur listamaðurinn eftir heilmikið fyrir okkur að ígrunda, löngu eftir að myndir hans eru horfnar okkur sjónum.”
Um sýninguna Omnivoures (Alætur)
Mannskepnan er alæta. Sönnunargögnin eru í tönnum okkar en við deilum eiginleikum með kjöt- og plöntuætum. Þrátt fyrir þessa sameiginlegu eiginleika með öðrum dýrategundum, er það sem aðgreinir mannkynið óyfirstíganleg græðgi. Þessi græðgi veldur löngun til að drottna yfir og eyða auðlindum Jarðarinnar, dýrum og öðru fólki. Við getum borðað næstum allt sem á vegi okkar verður og við gerum það, stundum jafnvel hvort annað. Í dag erum við að eyða meiru en Jörðin getur viðhaldið.
Umræðan