Tónlistarmaðurinn Davíð Rist sendi nýverið frá sér sitt annað lag, Scream It Out Loud. Lagið hefur lengi verið lokalag flestra tónleika Davíðs og nú er það loksins komið út í fullum rokkbúningi.
Davíð lauk BA gráðu frá Listaháskóla Íslands vorið 2019, þar sem hann lagði áherslu á laga- og textasmíði undir handleiðslu Péturs Ben og Sóleyjar Stefánsdóttur. Hann er nú búsettur í London þar sem hann er að ljúka Mastersnámi í sama fagi við ICMP, auk þessa að spila reglulega víðsvegar um London.
Að laginu koma: Davíð Sighvatsson Rist spilar á kassagítar og syngur. Finnur Sigurjón Sveinbjarnarson, hljómborð. Björgvin Birkir Björgvinsson, rafgítar. Arnar Jónsson, Rafbassi og Bjarni Dagur Karlsson spilar á trommur. Bassi Ólafsson sá um upptökur, mix og masteringu.
Umræðan