Ultraflex er ný sveit skipuð þeim Farao og Special-K, en þær voru að senda frá sér brakandi ferskt lag og myndband sem heitir „Never Forget my Baby.”
Fyrir skömmu sendi Ultravox frá sér lagið „Work Out Tonight“ en bæði lögin eru tekin af væntanlegri plötu þerra, „Visions of Ultraflex.” Never Forget My Baby er syntha drifið lag með straumum frá níunda áratugnum. Raddir Farao og Special-K eru draumkenndar sem lokkar okkur inn í litríka unglingaherbergið sitt. Lagið er stílhreint, áhyggjulaust og með öllu ómótstæðilegt.
Myndbandið við „Never Forget My Baby“ erleikstýrt af Jóhönnu Rakel.
Umræðan