Í sumar hafa 16 Listhópar ásamt Götuleikhúsinu starfað á vegum Reykjavíkurborgar. Hópana skipa 45 einstaklingar á aldrinum 17-25 ára með brennandi áhuga á listum.
Þau sækja um að vori með sínum eigin hugmyndum og koma þeim síðan í framkvæmd yfir sumartímann. Lista fólkið hefur nú starfað af miklum dugnaði í tæpar átta vikur við ýmis listræn tilþrif t.d. að taka upp EP plötu, æfa dans, semja og sýna gjörninga, mála olíumálverk, ritstýra nýju tímariti o.fl.
Í dag fimmtudaginn 15. júlí á milli 16:00-18:00 verður svo haldin uppskeruhátíð vinnu sumarsins sem kallast Vængjasláttur í Miðborg Reykjavíkur. Götuleikhús Hins Hússins mun einnig sýna gjörninginn „Fagradalsfjall“ á Ingólfstorgi.
Alla dagskrá hópana má finna HÉR einnig lesa sér til um verkefni hópana HÉR
Umræðan