Tónlistarmaðurinn LOGI, eða Arnar Logi Hákonarson var að senda frá sér sinn þriðja singúl, No More Lies, ásamt remixi af laginu sem hann vann í samstarfi við Draugr.
Arnar Logi er tiltölulega nýr tónlistarmaður, þrátt fyrir að hafa verið í tónlist frá 12 ára aldri. Hann er búsettur í Danmörku ásamt kærustu sinni og stundar þar nám ásamt því að búa til tónlist þegar tími gefst.
LOGI sér sjálfur um pródúseringu á laginu ásamt, texta, söng, mixi og hljóðfæraspili. Lagið tók hann upp í heimastúdíói sínu í Kaupmannahöfn.
Næsta lag frá Loga er væntanlegt 8.mars en planið er að gefa út EP plötu von bráðar.
Draugr á spotify:
Umræðan