Kiddi Kanína eða Kristinn Sæmundsson hefur svo sannarlega komið víða við á löngum og viðburðarríkum ferli!
Kiddi eins og hann er oftats kallaður átti og rak goðsagnakenndu plötubúðina Hljómalind en verlsunin naut gríðarlegra vinsælda á tíunda áratugnum. Einnig hélt kappinn helling af mjög eftirminnilegum tónleikum og oft á tíðum varð Brit Pop og Trip Hop tónlist fyrir valinu. Um verslunarmannahelgina árið 1995 fór tónlistarhátíðin UXI fram og var hún strax afar umdeild.
Fram komu nöfn á borð við Drumclub, Prodigy, Underworld, Aphex Twin, Unun, Lhooq, Bubbleflies, SSSól og Olympiu en aðalnúmer hátíðarinnar var hins vegar Björk. Eins og margir vita kom Kiddi Kanína að hátíðinni en hann lofar sérstakri afmælishátíð á næsta ári og í Facebook færslu segist hann vera kominn með staðsetningu! Tónlistarunnendur og allir sem hafa gaman af framúrskarandi skemmtun ættu að setja sig í stellingar því Kiddi veit svo sannarlega hvað hann syngur þegar kemur að tónleikahaldi og völ á “artistum”! Við bíðum mjög spennt en þangað til látum við heimildarmyndina duga en hana má sjá hér að neðan!
Umræðan