Nike blés til heljarinnar partý í Gamla Bíó síðastliðinn föstudag en það var svokallað Sneakerball! Fyrir utan Gamla Bíó var búið að koma fyrir pöllum þar sem skeitarar og Bmx gaurar sýndu listir sínar. Stemmingin var gríðarlega góð og stappað var út úr dyrum. Fólki gafst kostur á að fá sér húðflúr eða láta snyrta á sér hausinn en einnig var opinn bar allt kvöldið, ekki slæmt! Gísli Pálmi, B-Ruff og Úlfur Úlfur komu fram í partýinu og fengu þeir frábærar undirtektir enda ekki annað hægt þegar svona snillingar troða upp.
The Show Shutter kíkti við og smellti af þessum frábæru ljósmyndum fyrir hönd Albumm.is
Njótið!
Umræðan