Hljómsveitin Lister fagnaði á dögunum 10 ára afmæli fyrstu og einu plötu sveitarinnar, 360°, með því að flytja plötuna í heild sinni og gefa út sem tónleikamyndband á netinu.
Hljómsveitin, sem stofnuð var árið 2006 og spilar þungarokk undir sterkum áhrifum frá 9. og 10. áratug síðustu aldar, tók nýverið saman á ný með breyttri hljóðfæraskipan eftir að hafa að mestu haldið sig til hlés frá útgáfu plötunnar árið 2011. Sveitina skipa frá fornu fari söngvarinn Gísli Freyr Eggertsson og gítarleikararnir Björn Kr. Bragason og Jón Guð. Pétursson, en nýir meðlimir eru bassaleikarinn Rúna Vala Þorgrímsdóttir og trommuleikarinn Benji Schmid.
Afmælistónleikunum er að sögn meðlima í senn ætlað að loka hringnum um 360° plötuna, að vígja nýju meðlimina og að gefa áheyrendum tilfinningu fyrir áhrifum mannskapsbreytinga á hljóm sveitarinnar áður haldið er af stað með nýtt efni, en stefnt er að því að ferskir tónar fari að berast frá sveitinni með sumrinu.
Lister er á öllum helstu samfélagsmiðlum og má finna hlekk á þá alla á heimasíðu hljómsveitarinnar, lister.is
Umræðan