ALBUMM
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim Culture

Listamenn styðja við Úkraínu með listuppboði í Bíó Paradís

Ritstjórn Albumm.is Eftir Ritstjórn Albumm.is
10. March, 2022
í Culture
0 0
0
Listamenn styðja við Úkraínu með listuppboði í Bíó Paradís
Deila á FacebookDeila á Twitter

Listamenn hafa sameinast um að styðja við Úkraínu með listuppboði í Bíó Paradís á sunnudaginn 13. mars frá kl 14:00 til kl 21:00. Þetta er einstakt tækifæri til að kaupa listaverk og láta gott af sér leiða fyrir hörmungarnar sem nú standa yfir í Úkraínu.

Það eru listamennirnir Julia Mai Linnéa Maria og Alexander Zaklynsky sem standa fyrir viðburðinum “Art Auction for Ukraine” sem er átak til að hjálpa á þann eina hátt sem þau geta – í gegnum list. Þau héldu fyrsta uppboðið með engum fyrirvara síðustu helgi í Galleríi Port og á Vínstúkunni Tíu Sopum og söfnuðu hvorki meira né minna en 1,2 milljónum krónum fyrir Úkraínu. Nú á að bæta um betur og meðal þeirra listamanna sem taka þátt í uppboðinu eru:

Auður Lóa Guðnadóttir, Þorvaldur Jónsson, Alexander Zaklynsky, Árni Már Erlingsson, Hákon Pálsson, Aðalheiður Þórhallsdótti, Julie Sjofn Gasiglia, Julia Mai Linnéa Maria, Comfortable Universe, Davíð Örn Halldórsson, Steingrímur Eyfjör, Anna Story, Kristin Morthens, Hildur Ása Henrýsdóttir, Laima Ūdre og Eva Schram.

Til að loka uppboðinu kl 21:00 mætir enginn annar en Jón Gnarr sem hamra mun inn tilboðin af miklum móð og þetta ætti enginn listunnandi að láta framhjá sér fara.

Bíó Paradís sem eini meðlimur EUROPA CINEMAS á íslandi rennur einnig blóðið til skyldunnar og sýnir framlag Úkraínu til Óskarsins 2022 kl 15:00. Kvikmyndin REFLECTION gefur raunverulega innsýn inn í hryllinginn sem stríðið í Úkraínu hefur verið síðustu ár og hvaða áhrif það hefur á venjulega borgara þessa lands. Merkileg og raunsönn mynd þar sem allt miðaverðið rennur óskipt til stuðnings Úkraínu.

Bíó Paradís bætist þar með í hóp listabíóa sem hafa opnað dyr sínar fyrir viðburðum til styrktar Úkraínu og má nefna það að systurbíó Bíó Paradísar í Slóvakíu er búið að breyta í neyðarskýli, en Bíó Paradís og Kino Usmev vinna náið saman að verkefni sem varir næsta árið í Bíó Paradís og kallar á mörg ferðalög til Kino Usmev.

Fleiri vinabíó Paradísar eru í sömu sporum og má lesa um það HÉR

Tengdar Greinar

Verður þú í partý ársins um verslunarmannahelgina!
Culture

Verður þú í partý ársins um verslunarmannahelgina!

Nú styttist heldur betur í eina stærstu helgi ársins, sjálfa Verslunarmannahelgina! Ertu ekki búinn að fá þig fullsaddan af...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
25. July, 2023
Dansinn dunar, tónlist ómar, litríkur leikur og ljóð lesin
Culture

Dansinn dunar, tónlist ómar, litríkur leikur og ljóð lesin

Í sumar hafa níu Listhópar ásamt Götuleikhúsi Hins Hússins starfað við að útfæra fjölbreytt og metnaðarfull verkefni á listasviði....

Eftir Ritstjórn Albumm.is
29. June, 2023
Harlem Globetrotters kemur til landsins!
Culture

Harlem Globetrotters kemur til landsins!

Hið heimsfræga sýningar- og skemmtilið Harlem Globetrotters kemur í heimsókn til Íslands í heimsreisu ferð sinni 2023.  Liðið mun...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
22. May, 2023
What are Diljá and Pálmi up to?
Culture

What are Diljá and Pálmi up to?

As the world knows, the musician Diljá is competing on behalf of Iceland in the Eurovision 2023, which will...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
25. April, 2023
Næsta frétt
Ferðinni lýkur með tónleikum í landinu sem sem var innblásturinn að verkinu, Íslandi

Ferðinni lýkur með tónleikum í landinu sem sem var innblásturinn að verkinu, Íslandi

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist