Tónlistarkonan og pródúsentinn ZÖE var að gefa út nýtt og brakandi ferskt lag sem heitir „Silver Bullets.”
Silver Bullets er önnur smáskífa af væntanlegri breiðskífu hennar sem kemur út á næsta ári en ZÖE gerði nýlega útgáfusamning við Öldu Music um útgáfu plötunnar.
„Lagið er hresst og grúví og snýst um að uppgötva líkamleg og andleg tengsl við einhvern sem er svo ákaft að það er nánast of mikið til að bera. Það fjallar um að vera háður þessari tilfinningu en á sama tíma hræddur við hana.” segir ZÖE að lokum.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið og mæli Albumm klárlega með að skella á play.
Umræðan