Tónlistarkonan Sigfríð Rut Gyrðisdóttir eða Frid var að gefa frá sér nýtt lag en það ber heitið I Won’t og er fyrsta lagið sem hún gefur út af breiðskífu sem hún vinnur nú að.
Á þessu lagi leikur hún sér með “autotune” en hún beitir því á afar sérstakan hátt. Hljóðheimur Frid er einstaklega þéttur og skemmtilegur og er það greinilegt að hún er búin að nostra við hvert smáatriði.
Frid byrjaði að gefa út tónlist undir lok síðasta árs en þá gaf hún út stuttskífuna If you listen… sem inniheldur 6 lög. Tónlistarstíl hennar má lýsa sem draumkenndri raftónlist með R&B ívafi en hún dregur innblástur sinn frá listamönnum á borð við FKA Twigs, Banks og Bon Iver svo sumt sé nefnt.
Frid kemur fram á Iceland Airwaves í ár.
Umræðan