Birkir Már Sævarsson, Birgir Steinn Stefánsson, Ísleifur Eldur og Logi Snær Stefánsson keppa í FIFA 21 í leikjaþættinum Galið. Þátturinn er gerður af AlbummTV og kemur út hér á Albumm.is og á Vísir.is.
Komið er að seinni undanúrslitum þáttarins. Í þeim fyrri slógu Víkingarnir Kristall Máni og Adam Ægir út tónlistarmennina Bjarka Bomarz og Doctor Victor. Framleiðendur Galið lofa því að eitthvað óvænt komi fram í næsta þætti sem er einskonar aukaþáttur og kemur hann út á fimmtudaginn í næstu viku.

Það er óhætt er að segja að það sé komin mikil alvara í leikinn enda til mikils að vinna. Playstation 5 frá Senu og forláta GALIÐ faraldsbikar,“ segir Steinar Fjeldsted, ritstjóri Albumm. Framleiðslufyrirtækið AlbummTV og vefmiðillinn Albumm.is framleiða þessa nýju leikjaþætti í samstarfi við Snorri Bros, Vísi og Stöð 2 Esport. Þættirnir voru teknir upp á veitingastaðnum Le Kock í Hafnarstræti.
Umræðan