Veitingastaðurinn Sjáland sem opnaði nýlega í Sjálandinu í Garðbæ skartar fallegum tónleikasal sem var sérstaklega hannaður með tónlistarflutning í huga. Útsýnið úr salnum er heldur ekki af verri endanum en þaðan horfa gestir út á Faxaflóann og Snæfellsjökull er í miðju útsýnisins.
Eigendur Sjálands í Garðabæ vilja leggja sitt af mörkum til að koma landsmönnum í sumargleðina og út úr COVID-ástandi síðustu vikna og hafa ákveðið að blása til tónleikaraðar sem hefst um hvítasunnuhelgina. Tónleikaröðin hefur fengið nafnið Söngbók Sjálands ásamt því að vera með Rooftop BBQ á þaki veitingastaðarins á góðviðris dögum í sumar.
Mikið lagt í tónlist á staðnum og Rooftop BBQ.
„Við höfum fengið Dóru Júlíu sem getið hefur sér gott orð sem plötusnúður fyrir skemmtilega framkomu og einstaka hæfileika að byggja upp góða stemmningu. Dóra Júlía sér einnig um playlista fyrir okkur á veitingastaðnum því við leggjum gríðarlegan metnað í að skapa ógleymanlega upplifun fyrir gesti okkar í mat og drykk og skiptir þá tónlistar miklu máli. Dóra Júlía verður svo með okkur í sumar og haust að spila inná staðnum við sérstök tækifæri og þegar sólinn lætur sjá sig. Á þaki Sjálnds verðum við með grill og úti bar og ætlum að skapa frábæra stemmningu sem við köllum Rooftop BBQ því á þaki Sjálands er eitt flottasta útsvæði landsins, enda útsýnið óviðjafnanlegt.” Segja aðstandendur staðarins.
Margir af betri plötusnúðum landsins munu svo koma í heimsókn og taka þátt í að gera sumarið einstakt, en nánar um það síðar.
Söngbók Sjálands Tónleikaröðin.
GóSS, sem samanstendur af Sigríði Thorlacius, Guðmundi Óskari úr Hjaltalín og Sigurði Guðmundssyni úr Hjálmum opna söngbókina á laugardagskvöld og á sunnudagskvöld stíga Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson á svið.
GóSS hafa verið að taka upp vel valin íslensk dægurlög, en þar syngja þau og spila lögin í þjóðlaga stíl og hafa mörg þessara laga ratað í spilun bæði á Rás 2 og Bylgjunni.
Stebbi og Eyfi eru landskunnir fyrir tónleika sína, þar sem þeir slá á létta spjallstrengi milli laga sinna. Tónleikarnir verða eins og við er að búast af þeim ljúfur og vandaðir, en svo hitnar þeim í hamsi á seinni leggnum og sjálfsagt verður allt vitlaust í lokin enda kunna þeir varla neitt annað en að kynda upp kofana með gleði og gæðum. Þetta verður frábært tækifæri til hlusta á tvíeykið.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið Dagur Nýr með Stefáni Himarssyni sem kom út fyrir stuttu:
Sjáland á Facebook og Instagram
Skoðaðu 3D myndband af staðnum HÉR
Umræðan