Föstudaginn, 29.nóvember verður sannkölluð þungavigtar rokkveisla á Gauknum. Hljómsveitin Gunned Down Horses kemur til landsins í annað sinn alla leið frá Ísrael til að spila fyrir rokkþyrsta Íslendinga og með þeim verða hvorki meira né minna hljómsveitirnar Dr. Spock og Tuð!
Gunned Down Horses kom eins og stormsveipur inn í neðanjarðar rokksenunnni í Evrópu. Þeir eru þekktir fyrir mjög kraftmikinn og líflegan flutning og oft er talað um tónlistin sé mjög leikræn og í anda leikhússins. Sveitinni er líkt við samblöndu af Faith No More og Nick Cave með dassi af Tarantino og Fellini! Gunned Down Horses hafa ferðast út um allan heim, við gríðarlega góðar undirtektir og voru þeir m.a. fengnir til að hita upp fyrir hljómsveitina Deep Purple í fyrra.
Það verður rokk fyrir allan peninginn, tryllingur og dansiball og kanski verður leyni-hljómsveit? Hver veit? Tónleikarnir hefjast kl 22:00 og miðar á Midi.is og við hurð.
Hægt er að nálgast miða á midi.is og við hurð. Miðar í forsölu: 2.50. kr. Miðar við hurð: 3.000 kr.
Gunned Down Horses á Facebook og Instagram
Dr. Spock á Facebook
Tuð á Facebook
Umræðan