Í Dag miðvikudaginn 27. nóvember verður heimildarmyndin Kjarval og Dyrfjöllin forsýnd í Bíó Paradís kl kl 20:00.
Það var árið 1948 er Jóhannes Kjarval var á leið til Borgarfjarðar Eystri að heimsækja æskustöðvarnar sínar, að ferjan við Unaós kom ekki og hann snéri þá við og tjaldaði í fögrum hvammi stutt frá Ketilstöðum í Hjaltastaðaþinghá. Hann tók síðan ástfóstri við þennan fagra hvamm, sem síðan hefur verið kallaður Kjarvalshvammur.
Í myndinni eru leikin atriði sem sýna enn betur Kjarval sem lifandi persónu með tilfinningar og mannlega gæsku. Jón Hjartarson, leikari fer með hlutverk Kjarvals í myndinni. Leikstjóri myndarinnar er Ásgeirs Hvítaskálds.
Umræðan