Einn vinsælasti tónlistarmaður heims, KHALID, hefur gefið út lagið SKYLINE með hressasta myndbandi ársins sem er öruggt til að koma landsmönnum öllum í sumargírinn!
Khalid er á leiðinni til landsins á komandi dögum því hann mun halda stórtónleika í Laugardalshöllinni 4.maí! Stórstjarnan hefur valið tvo íslensk atriði til að hita upp fyrir sig. Það eru REYKJAVÍKURDÆTUR og GDRN sem munu stíga á svið í Höllinni og trylla lýðinn áður en Khalid stígur á svið.

Hér er um fyrstu sannkölluðu stórtónleikana á Íslandi í hartnær þrjú ár, en langt er síðan jafn stór og heit súperstjarna hefur komið til Íslands og nú bætast við þessi mögnuðu íslensku atriði – og því ljóst að það stefnir í tímamótatónleika og ógeymanlegt kvöld. Tæplega þarf að fara mörgum orðið um Kahlid og ferilinn hans. Hann hefur unnið sex Grammy verðlaun síðan hann sló í gegn 2016, toppað metsölulista um allan heim og unnið með mörgum af allra stærstu stjörnum heims, þar á meðal Billie Eilish, Ed Sheeran og Post Malone.
Hægt er að nálgast miða á TIX.IS
Umræðan