Kef LAVÍK gefur út nýtt lag í dag ásamt Jóa Pé, lagið nefnist Strobe og er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu sem kemur út í ágúst.
Í maí á síðasta ári gaf kef LAVÍK út fjögurra laga EP plötuna Heim eftir 3 mánuði í burtu. Platan var fyrsta útgáfa þeirra sem gefin er út á vegum Öldu Music. Kef LAVÍK eru þeir Einar Birkir Bjarnason og Ármann Örn Friðriksson og hafa þeir gefið út fimm plötur í fullri lengd og sex smáskífur.