Barna-og fjölskylduhátíðin Kátt á Klambra verður haldin hátíðleg í fjórða sinn á Klambratúni á sunnudaginn 28. júlí næstkomandi.
Það verður sannkölluð karnival stemning á túninu þar sem fjölskyldur koma saman og gera sér glaðan dag. Sérstaða Kátt á Klambra snýst um að leyfa börnum og fjölskyldum þeirra að taka virkan þátt í allskyns viðburðum og listsköpun í ævintýralegu og öruggu umhverfi. Það er virkilega frábært að hafa hátíð eins og Kátt á Klambra í Reykjavík og vonum við svo sannarlega að hún sé komin til að vera áfram!
Dagsráain í ár er sko alls ekki af verri endanum og ættu allir á öllum aldri að finna sér eitthvað við hæfi. Útvarðsmaðurinn góðkunni Andri Freyr er kynnir hátíðarinnar og mun hann sjá til þess að allt fari vel fram á stóra sviðinuHægt er að nálgast mið á hátíðina á Tix.is. 1.500 kr í forsölu, 2.000 kr við inngang, fjölskyldupakkar í boði, frítt fyrir 0-3 ára
Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild sinni.
Hátíðarsvið:
11.30 Fjölskyldujóga
12.30 Tónafljóð
13.00 Krakkaveldi
13.30 Plié
14.00 DJ Flugvél og Geimskip
14.30 Dans Brynju Péturs
15.00 Herra Hnetusmjör og Huginn
15.30 Yoga Moves
16.00 Gróa
16.30 Bjartar Sveiflur
Diskótjald Nova:
12.00 Barnadiskó með Sigga Bahama og DJ Storylight
13.00 Open Mic með Sigga Bahama
14.00 Húlla Dúlla
14.30 Raftónlistarsmiðja
15.30 Góði Úlfurinn
Afþreying:
11.30 Flækja
11.30-13.30 Smiðja með opnum efnivið
13.00 Primal fjölskyldutími
13.45 Primal handstöðutími
15.00 BMX Bros
14.00-17.00 Skynjunarbraut
Allan Daginn:
Sápukúlur og sull
Tattoo
Andlitsmálning
Rokkneglur
Föndurtjald
Diskótjald
Myndakassi
Ávextir frá Krónunni
Sjoppa
Snákaspil
Fjársjóðsleikur
Hjólabrettasvæði
Þrautabraut
Skiptitjald
Kósítjald
Barnanudd
Hugleiðsla
Sólarskoðun
Lukkuhjól
Partívöfflur Kötlu
Smástund Kubbar
Sögukeppni Forlagsins og bókahorn
Bókabíllinn er á svæðinu.
Kátt á Klambra á Instagram
Umræðan