Tónlistarkonan Karítas gefur út tónlistarmyndband við lag af breiðskífu hennar sem verður gefin út í mars á þessu ári.
Myndbandið er við lagið The Girl That You Want sem kom út í lok nóvember sl. Karítas hefur áður gefið út frumsamið efni en EP platan hennar Songs For Crying kom út síðla árs 2019, hana er hægt að finna á Spotify.
Á liðnu ári undirritaði hún samning við Sony sem sér í dag um dreifingu á tónlistinni hennar og verður spennandi að fylgjast með þessu ári hjá Karitas Handrit og listræn stjórnun var í höndum Sigthoru Odins myndlistarmanns í Hydration Space og Birta Rán Björgvinsdóttir kvikmyndatökumaður samleikstýrði og sá um upptökur og eftirvinnslu.
Umræðan