Tónlistarborgin Reykjavík, ásamt Barnamenningarhátíð í Reykjavík og List fyrri alla, kallar eftir umsóknum frá hópum sem eru með vel útfærða hugmynd eða tilbúið tónlistaratriði fyrir börn og sem hafa áhuga á að þróa atriðið enn frekar með reyndum og verðlaunuðum leikstjóra.
Skilyrði fyrir þátttöku er að hópurinn sé samsettur af fagfólki í tónlist, að atriðið og hugmyndin sé vel mótuð og að um sé að ræða atriði fyrir börn allt að 12 ára aldri sem tekur um 25 til 30 mín í flutningi.
Hópurinn sem verður fyrir valinu mun njóta listrænnar leiðsagnar frá Wouter Van Looy dagana 20. til 24. apríl. Hópurinn mun svo sýna atriðið á Big Bang tónlistarhátíðinni í Hörpu sem verður haldin laugardaginn 25. apríl og í grunnskólum Reykjavíkur föstudaginn 24. apríl. Greitt verður fyrir framkomu.
Wouter Van Looy er margverðlaunaður belgískur leikstjóri sem hefur sérhæft sig í uppsetningu tónleiksýninga. Wouter er stofnandi Zonzo Compagnie sem skipuleggur evrópsku tónlistarhátíðina Big Bang og framleiðir vönduð og framsækin tónlistaratriði fyrir börn.
Big Bang er evrópsk tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur þar sem börnum er boðið er upp á fjölbreytta efnisskrá sem samanstendur af tónleikum, innsetningum og tónlistartengdum smiðjum sem er flutt og framkvæmd af fagfólki í tónlist. Big Bang hátíðin fer fram í Hörpu laugardaginn 25. apríl 2020.
Umsóknir skal senda á tonlistarborgin@reykjavik.is fyrir miðnætti fimmtudaginn 23. janúar. Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:
Hverjir skipa hópinn og stutt lýsing á listrænum ferli allra þátttakenda
Lýsing á atriði, ásamt upplýsingum um tónlistartegund og fyrir hvaða aldur atriðið er hugsað
Tóndæmi, myndir eða myndband sem lýsa atriðinu frekar
Lýsing á því hvernig leiðsögn frá listrænum leiðbeinanda getur nýst atriðinu
Umræðan