Í gærkvöldi kom íslenska sveitin Kaleo fram í einum vinsælasta spjallþætti heims, Jimmy Kimmel Live.
Sveitin flutti lagið Break My Baby sem er að finna á plötunni Surface Sounds sem kemur einmitt út í dag. Sveitin tók upp myndbandið í húsnæði Máls og Menningar við Laugaveg og er öllu til tjaldað. Surface Sounds er búin að vera ansi lengi á leiðinni en henni seinkaði talsvert út af Covid-19. Aðdáendur sveitarinnar eru afar sáttir með plötuna og segja að biðin hafi verið vel þess virði.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndbandið frá Jimmy Kimmel en einnig er hægt að hlusta á nýju plötuna á Spotify.
Umræðan