Rapparinn Kafteinn Hafsteinn sem var hér á árum áður í keflvísku rappsveitinni Kafteinn Hafsteinn og Áhöfnin var að gefa út sitt fyrsta lag sem ber nafnið „Von.”
Lagið er unnið í nánu samstarfi við tónlistarmanninn Trausta Laufdal , sem er best þekktur sem einn fjórði hljómsveitarinnar Lokbrá. Trausti bæði tók upp og útsetti lagið en Kafteinn Hafsteinn sá um alla textagerð. Vonin snýst um jákvæðni og segja þeir bræður að lagið eigi að höfða ekki bara til rapphausa heldur tónlistarunnenda á öllum aldri. Þeir benda einnig á að nú á þessum skrítnu óvissutímum sé þörf fyrir von í okkar lífi.
Hægt er að hlusta á lagið á öllum helstu streymisveitum eins og Spotify, Apple og Tidal.
Umræðan