Tónlistarmaðurinn Jónsi sem flestir þekkja úr hljómsveitinni Sigur Rós sendi fyrir ekki svo löngu frá sér plötuna Frakkur.
Á plötunni má finna elektróníska tónlist sem Jónsi vann á árunum 2000 – 2004 en platan kemur út á rauðum, hvítum og bláum vínyl og í aðeins 3.000 eintökum. Jónsi vann að lögunum á milli stríða, heima hjá sér í Reykjavík, á hótel herbergjum á tónleikaferðalögum með Sigur Rós. Platan inniheldur 24 lög og er alls 108 mínútur að lengd, alls ekki slæmt það! Tónlist Jónsa er eins og ævintýri og skapar einstakt andrúmsloft sem fær hvert mannsbarn til að detta um stund úr tíma og stað.
Hægt er að kaupa plötuna á Jonsi.com
Umræðan