Þann 13. nóvember ætlar Jón Jónsson að stíga á svið í Eldborgarsal Hörpu til að fagna 10 ára starfsafmæli sínu sem tónlistarmaður.
Öllu verður til tjaldað svo upplifunin verði ógleymanleg bæði fyrir afmælisdrenginn sjálfan sem og aðra viðstadda. Jón flytur lög sín og mun njóta fulltingis fremsta tónlistarfólks landsins við flutninginn, undir styrkri stjórn Ara Braga Kárasonar. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 Hægt er að nálgast miða á Tix. is
Umræðan