Jólatónleikar Jóhönnu Guðrúnar, Jól með Jóhönnu, fara fram í streymi í ár, í beinni frá Háskólabíói 28. nóvember í samstarfi við NovaTV.
Jóhanna kemur fram ásamt 5 manna hljómsveit í stjórn Ingvars Alfreðssonar og flytur öll uppáhalds jólalögin með sínum einstökum sönghæfileikum. Sérstakir gestir verða Eyþór Ingi og Sverrir Bergmann. Jóhanna, hljómsveit, og gestir töfra fram notalega jólastemmningu, heima í stofu hjá þér. Miðasala á streymið fer fram á Tix.is og verður það aðgengilegt í hvaða nettengda tæki sem er í gegnum NovaTV.
Hljómsveitin:
Ingvar Alfreðsson – Hljómborð og hljómsveitarstjórn, Benedikt Brynleifsson – Trommur, Pétur Valgarð Pétursson – Gítar, Tómas Jónsson – Hljómborð og Valdimar Olgeirsson – Bassi.
Bakraddir:
Alma Rut,Íris Lind Verudóttir og Kristján Gíslason.
Almenn sala hefst 18. nóvember kl. 10:00. Forsala hefst 17. nóvember kl. 10:00. 20% afsláttur í forsölunni; takmarkað magn! Skráning á senalive.is/postlisti.
Nánari upplýsingar á Senalive.is
Umræðan