Í miðjum heimsfaraldri ákváðu þau Rakel, Jói P og Hafsteinn (CeaseTone) að setjast niður og skrifa saman tónlist. Þau voru öll sammála um að semja lag sem væri skemmtilegt og lifandi. Lagið Ég var að spá var því gert í gleðinni í takt við rísandi sól og fjölgandi bóluefnum.
Jói P og Hafsteinn (CeaseTone) kynntust í samstarfi á plötu þeirra JóaP x Króla, Í miðjum kjarnorkuvetri, en Rakel og Hafsteinn hafa gert tónlist saman fyrir tónlistarverkefni Rakelar sem ber einfaldlega heitið RAKEL.
Ég var að spá, er skemmtilegt lag sem fær fólk til að dilla sér inní vorið með von um bjartari og sólríkari daga.
Umræðan