Nýtt myndband frá JóaPé og Króla við lagið Ósvarað símtal kemur út í dag. Lagið má finna á plötunni „Í miðjum kjarnorkuvetri” sem kom út í apríl en platan hefur fengið frábærar viðtökur.
Myndbandið er framleitt af ANTI sem samanstendur af Tómasi Sturlusyni og Þorsteini Muna Jakobssyni og er tekið upp í Reykjavík. Helgi A og Sdóri úr Landaboi$ koma einnig fyrir í laginu en Viktor Breki Auðunsson fer með aðalhlutverkið. Sjón er sögu ríkari og það er ekkert annað í stöðunni en að skella á play!
Umræðan