Bandaríski tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn John Grant kemur fram á tónleikum í Hljómahöll þann 23. Október.
John Grant hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi árið 2011 og í framhaldinu tók hann ástfóstri við land og þjóð. Þann 25. júní síðastliðinn gaf John út sína fimmtu breiðskífu sem ber heitið Boy from Michigan. Platan er pródúseruð af Cate Le Bon sem kom fram í Hljómahöll árið 2019. John Grant hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir tónlist sína en hann hefur meðal annars verið tilnefndur til BRIT-verðlaunanna sem besti alþjóðlegi karlsöngvarinn, platan hans Queen of Denmark var valin besta plata ársins af Mojo o.s.frv. Grant hefur vakið eftirtekt fyrir einlæga og grípandi sviðsframkomu og þykja tónleikar hans mjög eftirminnilegir.
Tónleikarnir fara fram þann 23. október kl. 20:00. Aðeins verður selt í númeruð sæti og er takmarkað magn miða í boði. Miðasala hefst miðvikudaginn 1. september kl. 13:00 á tix.is. Boðið er upp á rútuferðir á tónleikana frá Reykjavík. Rútan fer frá N1 við Hringbraut (Hringbraut 12, 101 Reykjavík) til Hljómahallar kl. 18:30 og fer aftur til Reykjavíkur um leið og tónleikunum lýkur. Miðaverð fyrir báðar ferðir er 3.000 kr. á mann. Rúturnar eru merktar BUS4U.
Umræðan