Jóhanna Guðrún sendir frá sér fyrsta lag af væntanlegri jólaplötu en lagið heitir „Löngu liðnir dagar.”
Lagið er samið af Jóni Jónssyni en textann samdi Einar Lövdahl Gunnlaugsson og er komið út á Spotify og öllum helstu streymisveitum. Jól með Jóhönnu kemur út 19. nóvember og eru samtals 10 lög á plötunni. Fimm þeirra eru frumsamin og fimm tökulög. Tveir gestasöngvarar eru á plötunni en það eru Sverrir Bergmann og Eyþór Ingi Gunnarsson.
Forsala á plötunni er hafin í vefverslun Öldu Music og hjá Heimkaupum en hún kemur út á geisladisk og vínylplötu.
Umræðan