New Dreams er önnur breiðskífa Jófríðar Ákadóttur, öðru nafni JFDR, og fylgir eftir plötunni Brazil sem kom út árið 2017 við frábærar undirtektir. New Dreams kemur út í gegnum hennar eigið útgáfufyrirtæki, White Sun Recording.
Jófríður flutti til New York til að vinna að plötunni og hugmyndir og lagagrunnar voru oft teknir upp á ferðalögum þess á milli. Hún lýsir smíð New Dreams sem löngu og fallegu ferli, fullt af uppgötvunum og áskorunum og vísar titill plötunnar í þá vegferð.
Jófríður pródúseraði New Dreams sjálf og segir plötuna stærri í sér og viðameiri en þá fyrri. Hún segir að með því að vera sjálf við stjórnvölin hafi hún haft tækifæri til að segja nákvæmlega það sem hún vildi og treysta óvissu augnablikum í ferlinu.
Smáskífurnar “Shimmer,” “My Work,” og “Taking a Part of Me” eru nú þegar komnar út og nýtt myndband (sem sjá má hér að ofan) við lagið Think too Fast sem leikstýrt er af Timothée Lambrecq kom út í vikunni.
Umræðan