Heljarinnar klúbbakvöld á vegum íslendinga í Amsterdam verður haldið þann 1. mars næstkomandi, undir yfirskriftinni: Reykjavík Techno City.
Herlegheitin fara fram á klúbbnum John Doe, sem stendur við Rembrandtplein. Þrír íslendingar koma fram, Dapi Voltz, Jon G og Samwise.
Forsprakkinn Samwise er búinn að vera mjög virkur í techno senunni og hefur komið fram á hátíðum og klúbbakvöldum víðsvegar um Evrópu og á undir beltinu útgáfur hjá Voltage Records, Creepy Finger Records, og Minitech Recordings svo sumt sé nefnt. Sam setur upp þetta kvöld í samstarfi við UNDRGRND. Eins og fyrr kemur fram munu þrír íslendingar koma fram en einnig koma fram tveir erlendir plötusnúðar, Gvcci og Alex Sharp. Dapi Voltz(IS), Jon G(IS) Samwise(IS)
Á tónleikaferðum sínum er Samwise mikið spurður út í íslenska klúbbamenningu og segir einnig að það sé töluverður áhugi fyrir Íslandi og næturlífi Reykjavíkur. Því hafi hann ekki verið lengi að hugsa sig um þegar tækifæri gafst að bjóða Ísendingum til Hollands og leyfa Evrópubúum að heyra hvað Íslendingar eru að spila þessa dagana.
Við hvetjum alla nær- og fjærstadda Íslendinga sem eiga leið um hina fallegu borg Amsterdam að heilsa upp á þá og njóta þess sem verður í boði.
Kvöldið byrjar á Dapi Voltz (23:30 – 00:30 ) og mun hann leiða kvöldið af stað, þar til Jon G tekur við (00:30 – 02:00) og síðan Samwise (02:00-04:00) síðan munu Gvcci og Alex Sharp skipta með sér 2 tímum milli 04:00-07:00.
Umræðan