Fimmtudaginn 19. September verður útgáfu hljómplötunnar Paradox fagnað með tónleikum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði klukkan 20:30.
Paradox er sjötta plata gítarleikarans Andrésar Þórs og inniheldur 9 frumsamda jazzópusa sem sækja áhrif úr poppi, jazzi og þjóðlagatónlist auk ýmissa skammtafræðilegra tilvitnanna. Á tónleikunum leika þeir Andrés Þór á gítar, Agnar Már Magnússon á píanó ásamt góðum gestum frá New York, þeim Orlando Le Fleming á bassa og Colin Stranahan á trommur.
Þeir félagar munu einnig leika í Bókasafni Sandgerðis á vegum Jazzfjélags Suðurnesja miðvikudagskvöldið 18. September kl. 20:00
Paradox var hljóðrituð af Michael Perez-Cisneros og Alex Haley í New York á síðasta ári í Big Orange Sheep hljóðverinu í Brooklyn. Útgefandi er Dimma útgáfa.
Miðasala er á Tix.is
Umræðan