Ekki hringja í nótt, er nýjasta lagið hans Joseph Muscat eða Seint en hann hefur verið lengi í tónlistinni, meðal annars í nokkrum harðkjarnahljómsveitum.
Þegar Joseph fjárfesti í sinni fyrstu fartölvu árið 2009 kviknaði áhuginn hjá honum að búa til raftónlist. Albumm hitti á kappann og fékk að forvitnast um hvernig allt þetta byrjaði. „Ég hef verið í metal og harðkjarnanum síðan árið 2003. Þá byrjaði ég að spila á bassa í metalhetjuhljómsveitinni Brothers Majere sem tók þátt í Músíktilraunum árið 2004. Það var árið sem Mammút sigraði.“
Hljómsveitin lagði í laupana rétt fyrir 2005 og spilaði loka tónleik ana í TÞM, Tónlistarþróunarmiðstöðinni, þar sem hún fékk að hita upp fyrir eina af uppáhaldshljómsveitum Josephs í harðkjarnanum, Modern life is war. „Það var heiðarlegur dauðdagi fyrir sveitina,“ segir hann.
Úr ösku þeirrar hljómsveitar stofnaði hann Celestine árið 2006. „Hún hefur starfað síðan en með miklum meðlimaskiptum í gegnum árin. Þetta er bara svo inngróinn partur af mér að berja á gítarinn að ég held ég muni aldrei sleppa takinu af honum,“ segir Joseph en hljómsveitin er að vinna að sinni fjórðu plötu og planið er að halda tónleika á næstu mánuðum.
Joseph var svo í goðsagnakenndu harðkjarnahljómsveitinni I adapt árið 2008 og segir hann að sú hljómsveit sé ein ástæða þess að hann ákvað að feta braut tónlistarinnar. „Það var hinn æðsti heiður að hafa fengið að koma fram með henni seinasta hálfa árið sem hljómsveitin var starfandi,“ segir hann. „Hljómsveitin tók ævintýralegan túr um Bandaríkin og endaði á 500 manna troðfullum lokatónleikum í TÞM. Nítján ára ég fékk þennan draum uppfylltan og verð ég ávallt þakklátur fyrir það.“
Úr hugbreytandi efnum í tebolla
Hvað var það sem fékk þig til að breyta um tónlistarstefnu? „Minn áhugi á að búa til raftónlist kviknaði árið 2009 þegar ég fékk fyrstu fartölvuna mína. En ég hafði hlustað mikið á hljóm sveitir á borð við Nine Inch Nails og Massive Attack og síðan á hipp hopp í bland við það. Plús hugbreytandi efni á þeim tíma sem höfðu auðvitað áhrif á hversu glaður ég var að prófa nýja hluti. Enda var ég ungur og forvitinn. Í dag er góður tebolli nóg fyrir mig til að koma mér í sköpunargír,“ segir hann og hlær. „En ég rokkaði alltaf líka og hef sinnt öllum mínum verkefnum í tónlist af jafnmiklum áhuga. Seint kom mun seinna inn í myndina eftir að ég hafði prófað mig áfram í allskonar stefnum,“ útskýrir hann og bætir við að fyrsta platan sem hann gaf út undir því nafni hafi verið á árinu 2015.
„Ég var semjandi slík lög á háum skala mjög snemma. Örugglega í svipuðum gír og krakkarnir í hipp hopp og poppinu í dag“
Segja má að hljóðheimurinn sem Joseph er búin að skapa sér sé algjörlega sér á báti. Hann segist hafa verið fljótur að finna sig í rokkinu enda aðeins 18 ára þegar Celestine sendi frá sér sína fyrstu plötu sem fékk glimrandi viðtökur um allan heiminn í jaðarsenunni. „Ég var semjandi slík lög á háum skala mjög snemma. Örugglega í svipuðum gír og krakkarnir í hipp hopp og poppinu í dag. Hins vegar tók mig mun lengri tíma að fikra mig áfram í raftónlistinni þar sem ég var í raun aldrei viss hvað það var nákvæmlega sem ég vildi koma áleiðis. Ég auðvitað elska mikið af mainstream tónlist og nútímavæddu sándi. En ég fer ekki að búa til hamborgara bara af því allir elska að borða þá. Enda er ekkert gaman við það að hljóma eins og allir aðrir. Frekar kýs ég að vera ekki eins vinsæll fyrir vikið heldur en að herma eftir eitthverju sem hugsanlega virkar betur á fólk.“
Joseph segist semja aðeins það sem kemur út frá sínu eigin hjarta og sannfæringu. „Það virðist vera að mikið af fólki sé byrjað að opna hug sinn fyrir eitthverju öðru en rjómanum í senunni. En ekki misskilja mig. Ég ber mikla virðingu fyrir krökkunum í dag í poppinu á Íslandi. Þau eru auðvitað mis frábær,“ útskýrir hann og bætir svo við að hæfileiki þeirra allra er aðvitað óumdeilanlegur. „Í enda dagsins er þetta allt spurning um smekk manna.“
Spurður hvort Seint er hljómsveit eða sóló verkefni svarar hann að það sé bæði. „Það fer algjörlega eftir tónleikunum sem ég/við komum fram á. Ég hef verið með trommuleikara með mér á stærri tónleikunum. En fyrir þessa minni er það vanalega bara ég og dj. Ég var samt sem áður að bæta við henni vinkonu minni Sólkötlu sem söngkonu í atriðið. Við tókum okkar fyrstu tónleika saman um daginn á Gauknum og var það yndislegt line up. Þannig ég er nokkuð viss um að ég haldi í það upp á framtíðina.“
Framundan hjá Seint er að halda góða tónleika áður en Daníel trommuleikarinn í Seint flytur út til Ástralíu. „Ég kem einnig til með að spila á Fringe festival í Finnlandi í september. Einnig langar mig að gefa út nýja smáskífu á ensku á næsta ári. Þetta kemur allt í ljós þegar nær dregur.“
Seint á Spotify
Seint á Facebook
Seint á Instagram
Umræðan