Söngvaskáldið Ingunn Huld Sævarsdóttir var að senda frá sér stuttskífuna „Cycles & Tides” og inniheldur hún sex lög.
Lögin voru flestöll samin meðan Ingunn Huld var í Listaháskóla Íslands 2016-2018 og tekin upp árið 2019. Seinasta lag plötunnar, „Splendid” er eldra og var samið árið 2012 en tekið upp og gefið út í stúdíóútgáfu ásamt tónlistarmyndbandi haustið 2017. Titill plötunnar er innblásin af myndmáli úr laginu „All of a suddenen” það lag er samið eftir fósturmissi.
Lögin á plötunni eiga það sameiginlegt að taka á reynsluheimi kvenna á einn eða annan hátt og fjallaði lokaverkefni Ingunnar Huldar við LHÍ um tilfinningalega úrvinnslu söngvaskálda við lagasmíðar, sér í lagi tilfinningalega úrvinnslu eftir fósturmissi. Fyrstu 5 lög plötunnar tók Arnar Guðjónsson upp í Aeronaut Studios. Hann sá einnig um hljóðblöndun laganna og strengjaútsetningar. Ingunn Huld annaðist brassútsetningu í laginu In the morning sun og kom að strengjaútsetningu í laginu All of a sudden. Addi 800 sá um hljómjöfnun.
Lagið tók Stefán Örn Gunnlaugsson upp og hljóðblandaði en Bjarni Bragi Kjartansson sá um hljómjöfnun. Áður hefur Ingunn Huld gefið út breiðskífuna Fjúk árið 2015 en hún innihélt 11 frumsamin lög og texta.
Umræðan