Lagið Hvíti dauði er komið út í endurhljóðblandaðri og uppfærðri útgáfu. Þetta remix er úr smiðju Sk-Ar sem er sólóverkefni Skúla Arasonar sem er meðal annars meðlimur í Flekum og Elínu Helenu. Þetta er ein af mörgum útgáfum lagsins sem litið hefur dagsins ljós en lagið er upprunalega samstarfsverkefni Teits Magnússonar og Gunnars Jónssonar. Hér er lagið komið í einhverskonar skóglápsbúning.
Það er væntanleg sveimandi hljóðgerflaplata frá Sk-Ar, það er annar hluti af 3 platna upphafsferli listamannsins sem hver hefur sinn einkennandi hljóðheim. Í fyrra kom út fyrsta platan í þessum bálki, Þá verðum við jöfn, en hún var í þyngri kantinum.
Þessari útgáfu af Hvíta dauði fylgir myndband sem má finna á youtube síðu Sk-Ar en það lýsir litríkri ferð um skynvilludauðaheim Selfossbæjar. Á síðunni má einnig finna myndbönd við öll lög Sk-Ar .
Lagið má finna á öllum helstu streymisveitum og er hægt að smella sig áfram á facebook og instagram síðum Sk-Ar. Þar sem uppfærslur um væntanleg verkefni verða tíð á næstunni.
Lagið á spotify:
Sk-Ar á Facebook: https://www.facebook.com/SkArArason/
Sk-Ar á Spotify: https://open.spotify.com/artist/7cmsn…
Sk-Ar á Instagram: https://www.instagram.com/sk_ar_music/
Sk-Ar á Soundcloud: https://soundcloud.com/sk_ar
Sk-Ar á Bandcamp: https://sk-ar.bandcamp.com
Umræðan