Tónlistarmaðurinn Doddi eða Þórður Helgi Þórðarsson var að senda frá sér heimildarmynd en hún fjallar um 16 ára meðgöngu hans nýjasta lags sem kom út í vor, Alive.
Hvað fær Dodda til að gera þessa mynd?
„það eru í raun tvær ástæður, fyrst þá skoraði Jón Þór Helgason (Weekendson) á mig að gera það honum fannst saga lagsins skemmtileg. Ég samdi Alive fyrir Love Guru þegar við ætluðum að breyta um stíl og hætta þessu Silly poppi og gera alvöru tónlist,það gekk ekki vel. Ég get ekki sungið hvað þá spilað á hljóðfæri og var ekki með nein tónlistarforrit í tölvunni til að gera nokkurn skaðan hlut.
Ég varð að klippa niður annað lag og semja ofan á það og svo var prósessinn ansi langur þar til að ég var endanlega sáttur með lagið, 16 ár. Hin ástæðan eru þessir erlendu stuðningsmenn Dodda verkefnisins, þeir eru mjög duglegir að spyrja um þetta Love Guru dæmi, skilja ekki hver fjandinn er þar í gangi, eðlilega. Þess vegna fer ég aðeins í söguna um hvernig og af hverju Love Guru varð til (stutta útgáfan). Þegar þangað var komið þá langaði mig að leyfa fólki að heyra hluta af þessum milljón útgáfum sem til eru af laginu og þá var ekki aftur snúið
Ég fékk N3dek félaga minn frá Morocco (prodúseraði mikið af plötunni minni, Last)til að fara í gegnum pródúseringuna á þessari loka útgáfu (bara fyrir hörðustu nördana). Ég byrjaði að taka þetta upp um páskana og missti svo áhugan og var búinn að gleyma þessu þegar Jón Þór segir mér að drullast til að klára þetta. Við N3dek erum nefnilega að vinna annað svona gamalt demo sem ég samdi ofan á nokkur lög sem ég bræddi saman, það er meira að segja getraun í lok myndarinnar: Hversu mörg lög þekkir þú í gamla demoinu? Ég er nokkuð viss um að engin þekki þau öll.
Af hverju er myndin á ensku?
„Eins og ég sagði þá gerði ég þetta til að útskýra hvað þetta Love Guru dæmi væri fyrir erlendum vinum mínum svo næst þegar ég fæ spurninguna: „Hvaða Fokk er þetta Love Guru, þá sendi ég þeim bara linkinn…” Þetta var frekar fáránleg upplifun, einn inni í einhverju herbergi að röfla, á ensku! Ég kann ekkert ensku. Það er mögulega messta skemmtanagildið fyrir fólk, að horfa á mig reyna að tala ensku eins og það sé ekkert mál fyrir mig. Þetta er ekki góð mynd, hún er eiginlega mjög léleg (tekin upp á gamla símann minn) en gæti verið forvitnileg fyrir nörda.
Umræðan