Hugsanalestur, flugbeitt rakvélablöð og sjónhverfingar á heimsmælikvarða er meðal þess sem Ingó Geirdal býður upp á í magnaðri töfrasýningu sem rokkar! Sýningin fer fram í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn, 8. Mars kl 16:00 og er hægt að nálgast miða á Tix.is.
Ingó Geirdal er tvímælalaust reyndasti töframaður Íslands en hann hefur sýnt ótrúleg töfrabrögð sín í yfir 40 ár á skemmtunum og í sjónvarpsþáttum víðsvegar um heim. Ingó er jafnframt eini íslenski töframaðurinn sem hefur verið fenginn til að koma fram á Norðurlandamóti töframanna, auk þess að skemmta í einkaboðum fyrir rokkstjörnur eins og Alice Cooper og Depeche Mode.
Margir þekkja Ingó þó einnig sem tónlistarmann og gítarleikara m.a. með Bubba Morthens, Quarashi og DIMMU.
Kaupið miða á sýninguna HÉR.