Bubbi Morthens sendir frá sér fjórðu smáskífuna af nýjustu plötu sinni, en það er einnig titillag plötunnar, Regnbogans stræti.
Hugmyndina að laginu fékk hann á Seyðisfirði þar sem nokkrir íbúar höfðu tekið sig til og málað liti regnbogans á götuna upp að kirkjutröppum að næturlagi í tilefni að Pride dögunum.
Alda Music mun setja í sölu sérútgáfu á 7 tommu vínyl með órafmagnaðri útgáfu af laginu, sem mun einnig koma út samhliða því næsta föstudag, 27. september.
Umræðan